I. Afmörkun viðfangsefnis og álitaefni
Lög til breytinga á lögræðislögum nr. 71/1997 tóku gildi þann 1. janúar 2016. Meðal markmiða með endurskoðun laganna var að uppfæra þau til samræmis við ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra (samningur S.þ) í ljósi áætlana stjórnvalda um fullgildingu samnings S.þ.
Í kjölfar samþykktar laganna barst höfundi beiðni frá Landsamtökunum Geðhjálp um að gera úttekt á lögunum til þess að rannsaka hvort nýsamþykktar breytingar væru fullnægjandi til þess að lögræðislögin gætu talist standast þær kröfur sem samningurinn gerir til aðildaríkja um vernd réttinda fólks með fatlanir. Niðurstaða rannsóknarinnar liggur nú fyrir og vill höfundur þakka Hafþóri Sævarssyni laganema sérstaklega, fyrir veitta aðstoð við gerð úttektarinnar.
Helstu álitaefnin sem verða tekin til skoðunar varða þrjú ákvæði lögræðislaga. Við val á lagaákvæðum var sértaklega horft til þess að skýra mætti með hnitmiðuðum hætti það misræmi sem virðist ríkja milli þeirra sjónarmiða er ráða innihaldi núgildandi lögræðislaga og þeirra er mynda réttindaákvæði samnings S.þ. Ákvæðin sem um ræðir má telja til grunnstoða lögræðislaga, en þau eru 4. gr., sem fjallar um lögræðissviptingu, 19. gr. um nauðungarvistun og 28. gr. um þvingaða lyfjagjöf og aðra þvingaða meðferð. Farið verður yfir stöðu alþjóðlegrar skuldbindingar Íslands gagnvart samningi S.þ með þessi ákvæði í huga. Athugað verður hvort þessi ákvæði standist skilyrði samningsins. Þá verður einnig litið til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) og tilmæla nefndar Evrópuráðsins gegn pyndingum (CPT-nefndin).
Þau ákvæði sem tekin verða til skoðunar fela öll í sér heimild til veigamikillar frelsisskerðingar einstaklinga sem ekki er að finna í öðrum lögum. Hafa verður í huga eðli slíkrar valdheimildar yfirvalda við gerð og framkvæmd laganna enda liggja grundvallarréttindi borgara undir.
Helsta niðurstaða rannsóknar þessarar er sú að enn er töluverðra breytinga þörf eigi lögræðislögin að uppfylla umræddar kröfur. Sérstaklega er vert að taka fram að orðalag 2. tl. 28. gr. og 2. tl. 19. gr. lögræðislaga eru óásættanlegt með öllu m.t.t. mannréttindasáttmála Evrópu (MSE).
1. Tilgangur breytingarinnar á lögræðislögum:
Mannréttindum er ætlað að hafa efnislegt gildi og raunverulega þýðingu. Sú viðleitni til réttinda fólks skín í gegn við lestur frumvarps ályktunar um stefnu og framkvæmdaráætlun um málefnni fatlaðs fólks sem lögð var fram í byrjun árs 2012.
Þáverandi velferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson heitinn, lauk framsögu sinni sem flutningsmaður tillögunar með þeim orðum að með samþykkt tillögunar ,,er haldið áfram á þeirri braut sem miðar að því að vernda og tryggja að allt fatlað fólk njóti fullra og jafnra mannréttinda og frelsis, auk þess að vinna að virðingu fyrir meðfæddri göfgi fatlaðs fólks,” tillagan með breytingum var samþykkt samhljóða á Alþingi sumar sama árs sem varð til þess að margvíslegir ferlar fóru af stað. Einn helsti liður framkvæmdaráætlunarinnar sneri að undirbúningi fullgildingar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Enn er verið að vinna að fullgildingu samningsins.
Vinna við endurbætur lögræðislaga var hluti af því ferli þó hún lyti einnig fleiri markmiðum. Í greinargerð frumvarps með nýjum lögræðislögum sem tóku gildi í byrjun þessa árs er greint frá því að unnið er að mótun landsáætlunar í mannréttindamálum. Þá segir í greinargerð að þeir sem þjáist af völdum geðsjúkdóma höfðu varpað ljósi á nauðsyn þess að breyta lögræðislögum. Geðfatlaðir eru í miklum meirihluta þeirra sem sæta lögræðissviptingu, nauðungarvistun og þvingaðri lyfjameðferð.
Einnig hafa verið lögð fram formleg tilmæli um úrbætur á lögunum, sbr. skýrslna nefndar Evrópuráðsins gegn pyndingum. Nefndin hefur heimsótt Ísland í fjögur skipti og gert athugasemdir við lög og verklag innan geðheilbrigðiskerfisins sem ekki þykir tryggja réttindi notenda með fullnægjandi hætti.[1] Fullt tilefni var því til endurskoðunar lögræðislaga. Tilteknar athugasemdir CPT-nefndarinnar voru nokkuð alvarlegar þar sem verndarráðstafanir sem tryggðar skulu í lögum voru ekki til staðar. Ljóst var að gildandi fyrirkomulag íslenskra laga og framkvæmdar var ekki talið standast alþjóðlegar skuldbindingar.
Markmið endurskoðunar lögræðislaga var að svara þessum áhyggjum með lagaákvæðum sem standast alþjóðlegar skuldbindingar. Þá segir ennfremur í greinargerð við breytingu laganna að mikilvægt er að „lagaramminn sé skýr hvað varðar réttindi og skyldur á þessu sviði, en um er að ræða afar mikilsverð persónuleg réttindi einstaklinga sem reynir oft á þegar einstaklingar eru í viðkvæmri stöðu.“
Við lestur greinargerðarinnar verður ekki annað ráðið en að mannréttindarsjónarmið af margvíslegum toga hafi ráðið för. Ennfremur skal tekin fram sú afstaða er fram kemur í greinargerð vinnuhóps Innanríkisráðuneytis, um fullgildingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks að nauðsynlegt sé að ráðast í átak ,,til vitundarvakningar til að kynna innihald sáttmálans og þá breyttu samfélagslegu nálgun sem fullgilding hans hefur í för með sér. “[2]
2. Gildi samningsins
Ávallt er vandkvæðum bundið fyrir kerfi jafnt og einstaklinga innan þess að aðlagast nýrri hugmyndafræði til að bera kennsl á sama mynstur með öðrum hætti. Grunnhugsun samnings S.þ er sú að að óleyfilegt er að mismuna fötluðum á grundvelli fötlunar þeirra: Fötlun má aldrei verið ástæða mismunar. Talin var þörf á að semja sérstakan samning um réttindi fatlaðra því að þrátt fyrir að fatlað fólk njóti mannréttinda til jafns við aðra hópa samfélagsins í orði þá er sú alls ekki raunin í borði. Fatlað fólk verður ítrekað fyrir grófum mannréttindabrotum oft eingöngu á grundvelli fötlunar sinnar. Samningurinn skapar ekki ný mannréttindi heldur er honum ætlað að tryggja sérstaklega að fatlað fólk njóti sjálfsagðra mannréttinda til jafns við aðra. Ákvæði samningsins útlista á framsækinn og nákvæman hátt hvernig aðildarríkjum beri að tryggja í lögum og framkvæmd að mannréttindi fatlaðs fólks séu virt í hvívetna.
Eitt mikilvægasta ákvæði samningsins kveður á um jafna réttarstöðu fatlaðra einstaklinga og jafnan rétt þeirra til lögformlegs hæfis (sbr. 12. gr. samningsins). Lengi hefur tíðkast að svipta fatlað fólk lögræði, og þá sérstaklega fólk með geðfatlanir og þroskaskerðingar. Slík takmörkun réttinda hefur gjarnan verið rökstudd á grundvelli verndarsjónarmiða gagnvart hinum fatlaða einstaklingi en einnig vegna þess hryggilega viðhorfs að fatlað fólk geti ekki fötlunar sinnar vegna talist aðilar að lögum. Réttur fatlaðra til stuðnings við ákvarðanatöku sem finna má í samningi S.þ felur í sér grundvallarbreytingu á þeirri nálgun sem viðgengist hefur gagnvart sjálfsákvörðunarrétti fatlaðs fólks fram að samþykkt samningsins.
Í samningi S.þ eru tekin af öll tvímæli að fatlað fólk eigi að njóta sjálfstæðis, sjálfsákvörðunarréttar og gerhæfis. Með fullgildingu samningsins gangast aðildarríki undir alþjóðlega skuldbindingu þess efnis að virða lögformlegt hæfi fatlaðs fólks til jafns við aðra og veita þeim sem þess þurfa nauðsynlega aðstoð og stuðning til þess að njóta þess réttar. Samningurinn markar tímamót að því leyti að hann hafnar verndarsjónarmiðum og forræðishyggju gagnvart fötluðu fólki og krefst þess í stað valdeflingar og aukinar þáttöku fatlaðra í samfélaginu. Með honum er aðildarríkjum gert skylt að leggja niður lagakerfi og framkvæmd þeirra sem taka ákvarðanir fyrir hönd fatlaðra og bjóða þess í stað upp á stuðning þeim til handa sem fötlunar sinnar vegna eiga hægara um vik með ákvarðanatöku en aðrir.
Að mati höfundar er mikilvægt að núgildandi lögræðislög taki umtalsverðum breytingum til þess að tryggja betur réttindi fatlaðs fólks til lögformlegs hæfis. Lögin eins og þau eru orðuð nú, mismuna fötluðu fólki og eru ekki sniðin til þess að auka valdeflingu og sjálfstæðri fatlaðra einstaklinga í íslensku samfélagi. Viss jákvæð skref hafa verið stigin með tilkomu réttindagæslumanna og persónulegra talsmanna fatlaðra á síðustu árum en efla þarf það stuðningsnet sem þessum aðilum er ætlað að mynda utan um réttindi fatlaðs fólks.
3. Skuldbindingar Íslands
Innanríkisráðuneytið leiddi vinnu samstarfsnefndar ráðuneyta við undirbúning fullgildingar samnings S.þ. Á grundvelli þeirrar vinnu liggur fyrir greining á efnisákvæðum samningsins og samanburður á þeim við núgildandi lög, þ.á.m. lögræðislög. Í vinnuskjali sem finna má á vef ráðuneytis undir heitinu ,,Tafla yfir lög og reglugerðir sem varða samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks” má sjá vísun í nokkur ákvæði samningsins þar sem lögræðislög eru sögð uppfylla ákvæði samningsins.[3] Þar er m.a. nefndur b-liður 14. gr. sem segir fyrir um að ,,fötlun skuli ekki undir neinum kringumstæðum réttlæta frelsissviptingu” og 2. töluliður 12. gr. er segir: ,,Aðildarríkin viðurkenni að fatlað fólk skuli njóta gerhæfis [sic] til jafns við aðra á öllum sviðum mannlífs.”[4]
Þrátt fyrir að vinnuhópurinn komist að þeirri niðurstöðu að lögræðislög uppfylli skilyrði samnings S.þ er ekki að sjá sérstakan rökstuðning fyrir þeirri afstöðu. Rökstuðningur væri æskilegur fyrir þeirri afstöðu að skilyrði um nauðungarvistun og skilyrði um lögræðissviptingar standist þessi ákvæði samnings S.þ. Hafa verður í huga að skilgreining fatlaðs einstaklings skv. samningi S.þ er mjög rúm. Lagaheimildir lögræðislaga til nauðungarvistunar vegna alvarlegs geðsjúkdóms virðast því augljóslega brjóta í bága við 14. gr. b-liðar enda teljist alvarlegur geðsjúkdómur til fötlunar. Í því samhengi er rétt að nefna dóm MDE (M.S. gegn Króatíu nr. 2) þar sem talið var að ef frelsissvipting á sér stað á grundvelli 5(1)e gr. mannréttindasáttmála Evrópu um andlegan sjúkdóm (e. unsoundness of mind) þá er um einstakling með fötlun að ræða.
Þegar athugað er hvort lögræðislög uppfylli skilyrði samning S.þ ber að hafa í huga að ákveðið svigrúm er gefið innlendum lögum til að uppfylla samninginn. Það svigrúm einskorðast við hvernig innlend löggjöf hefur ákveðið að taka á þessum málaflokki, t.a.m. við að skilgreina fötlun. Svigrúmið er ekki mikið en getur þrátt fyrir það haft ýmis áhrif. Mikilvægt er að taka það til sérstakrar skoðunar.
Íslensk löggjöf fór þá leið að lögfesta vægi túlkunar samningsins þar sem samningnum er gefið sérstakt vægi í lögum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um málefni fatlaðra: ,,sérstaklega skal tekið mið af þeim alþjóðlegu skuldbindingum sem íslensk stjórnvald hafa gengist undir, einkum samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.“
Þar af leiðir verður 2. gr. laga um málefni fatlaðra, sem skilgreinir fötlun í núgildandi löggjöf, að vera túlkuð til samræmis við 2. mgr. 1. gr. sömu laga. Réttaráhrif þeirrar tilhögunar á alþjóðlegar skuldbindingar Íslands eru þau að lágmarksskilyrðin fyrir Ísland eru jafnvel meiri en ella hefði þurft. Þannig nær alþjóðleg skuldbinding Íslands til réttinda allra þeirra hópa sem samningurinn kveður á um, að því gefnu að þeir geti á annað borð rúmast innan þeirra tilvika sem 2. gr. laganna nefnir:
,,Hér er átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun, sjón- og heyrnarskerðingu. Enn fremur getur fötlun verið afleiðing af langvarandi veikindum, svo og slysum.“ Lögskýringargögn ná ekki að þrengja tilvik í lögræðislögum og mæla ekki heldur með því sérstaklega.
3.1 Greinarmunur á skuldbindingum
Sé litið til greinargerðar nýrra lögræðislaga koma fram tilteknar fullyrðingar um ákvæði lögræðislaga sem standist samning S.þ. Þær fullyrðingar koma undarlega fyrir sjónir. Samningurinn er vissulega framsækinn og vægðarlaus miðað við núverandi kerfi margra aðildarríka. Samningurinn gefur mjög lítið svigrúm fyrir túlkun á réttindum sem hann tryggir. Ákveðnar fræðilegar deilur hafa þó vaknað um túlkun einstaka ákvæði samnings S.þ og þá hvort efni standi til að slakað sé á sumum skilyrðum samningsins. Í greinargerð nýrra lögræðislaga virðist sú túlkun samningsins gilda, að fræðileg rök, gegn sumum ákvæðum samningsins teljast nægjanlega góð til að þess að meta sem svo að ákvæði lögræðislaganna uppfylli skilyrði samningsins. Varhugavert er að taka mið af slíkum fullyrðingum án rökstuðnings og heildstæðs mats.
Á meðan samningur S.þ hefur verið gagnrýndir fyrir lítið svigrúm fyrir aðlögun aðildarríkja, þá hefur mannréttindadómstóll Evrópu sætt töluverðri gagnrýni fyrir að gefa of mikið svigrúm þegar kemur að t.a.m. nauðungarvistun. Dómstóllinn hefur aðeins séð sér fært að gera kröfu um algjör lágmarks skilyrði. Nauðsynlegt er að hafa það í huga þegar kemur að gagnrýni lögræðislaga, nauðungarvistunar og aðra þátta, út frá dómasögu MDE.
II. Lögræðissvipting
Nýleg breyting á lögræðislögum tók til 4. greinar laganna um skilyrði þess að svipta megi einstakling lögræði sínu, sjálfræði einu sér eða fjárræði einu sér. Í greinargerð með frumvarpi til laga á breytingu lögræðislaga um 4. gr. kemur fram, að við breytingu á orðalagi 4. gr. hefði verið tekið mið af ákvæðum 12. greinar samnings S.þ (sem kveður á um jafna réttarstöðu fatlaðra til lögformlegs hæfis (sjá nánar í kafla II.3. )). Ennfremur hafi verið horft til ákvæða úr íslenskum lögum um réttindi fatlaðra sem sett hafi verið vegna áætlaðrar fullgildingar samningsins. Breytingunni var ætlað að tryggja „að samspil milli lögræðislaga og laga um réttindagæslu fatlaðs fólks sé með sem bestu móti“ og í samræmi við alþjóðlegar mannréttindaskuldbindingar Íslands. Við gerð frumvarpsins hafi ennfremur verið;
„[…] litið til almennra athugasemda nefndar Sameinuðu þjóðanna sem hefur eftirlit með framkvæmd samningsins og sjónarmiða hagsmunaaðila um að skýrt sé í lögum að svipting lögræðis sé aðgerð sem sé þrautaúrræði.“
Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra fer með túlkunarvald á inntaki og þýðingu þeirra réttinda sem í samningnum felast og ber því að líta á þær sem gilt lögskýringargagn með samningnum. Í athugasemdinni sem um ræðir fer nefnd S.þ ítarlega yfir þau atriði sem aðildarríki verði að hafa í huga þegar tryggja á réttindi fatlaðs fólks samkvæmt 12. grein samningsins sem og túlkun hennar í samhengi við önnur ákvæði samningsins (hér er t.d. átt við bann við mismunun á grundvelli fötlunar skv. 5. gr.).[5]
Í greinargerð með frumvarpinu má finna ítrekaðar tilvísanir í almennar athugasemdir nefndar S.þ, sem þó virðast ákveðnum misskilningi gæddar þar sem nefndin leggst alfarið gegn veigamiklum atriðum sem finna má í lögræðislögunum, þ.m.t. lögræðissviptingu á grundvelli fötlunar.
Því er vert að athuga hvort núverandi ákvæði um lögræðissviptingar standist í raun kröfur samnings S.þ um réttindi fatlaðra sem og aðrar alþjóðlegar mannréttindaskuldindingar Íslands. Í því samhengi verður fyrst og fremst litið til 5. og 12. greinar samnings S.þ og almennra athugasemda nefndar S.þ um túlkun þeirra, ásamt öðrum viðeigandi heimildum.
1. Skilyrði lögræðissviptingar samkvæmt lögræðislögum
„Skilyrði lögræðissviptingar o.fl.
4. gr.
[Standi brýn þörf til, enda hafi önnur og vægari úrræði í formi aðstoðar verið fullreynd, er heimilt með úrskurði dómara að svipta mann tímabundið lögræði. Heimilt er að svipta mann sjálfræði einu sér, fjárræði einu sér eða hvoru tveggja]:1)
[…]“
- Ef hann er ekki fær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé vegna andlegs vanþroska, ellisljóleika eða geðsjúkdóms eða vegna annars konar alvarlegs heilsubrests.
Tekið er fram í greinargerð með frumvarpinu að nefnd S.þ fjalli sérstaklega um að „sjálfræði fatlaðs fólks og réttur þess til þess að taka ákvarðanir um heilbrigðisþjónustu“ hafi löngum verið skertur með margvíslegum hætti. Nefnd S.þ er sögð leggja áherslu á að veita skuli fötluðum einstaklingi aðstoð við sjálfstæða ákvarðanatöku í stað fyrirkomulags sem veitir öðrum aðila ákvörðunarvald fyrir hans hönd.
Að mati löggjafans hefur verið komið til móts við þetta sjónarmið nefndarinnar með setningu laga nr. 88/2011, um réttindagæslu fyrir fatlað fólk og með þrengingu á skilyrðum til lögræðissviptingar skv. 4. gr. lögræðislaga. Í greinargerð er vísað til IV. Kafla laganna um réttindagæslu fatlaðra um persónulega talsmenn en tilgangur laganna „sé m.a. að koma á fyrirkomulagi til stuðnings við ákvarðanatöku í samræmi við ákvæði 12. gr. samningsins.“ Breytt orðalag 1. mgr. 4. gr. þar sem tekið er fram að „standi brýn þörf til, enda hafi önnur og vægari úrræði í formi aðstoðar verið fullreynd“ undirstriki það sjónarmið að svipting lögræðis sé algjört neyðarúrræði sem einungis eigi að grípa til þegar „önnur lögbundin samfélagsleg og lagaleg úrræði geti með engu móti nýst viðkomandi.“
Í þessu samhengi er þó vert að nefna að lög um réttindagæslu fatlaðra, nánar tiltekið þau er varða talsmenn fatlaðra, uppfylla ekki lágmarksskilyrði 4. mgr. 12. gr. samnings S.þ um nauðsynlegar verndarráðsstafanir fyrir stuðning við ákvarðanatöku. Persónulegir talsmenn fá ekki laun fyrir störf sín í þágu fatlaðra og því verði ekki séð að allir fatlaðir einstaklingar geti nýtt sér slíkan stuðning þar sem úrræðið er ekki aðgengilegt öllum fötluðum einstaklingum án tillits til fjárhags eða annarra haga viðkomandi (sjá nánar í kafla IV.1).
2. Bann við mismunun á grundvelli fötlunar og 12. grein samnings S.þ
Í greinargerð má sjá að við gerð frumvarpsins bárust ábendingar frá samráðsaðilum um að frekari breytinga væri þörf á þeim ákvæðum er snúa að lögræðissviptingu í lögunum. Vakin var athygli á því að koma þyrfti frekar til móts við kröfur 12. greinar samnings S.þ sem segir fyrir um réttarstöðu fatlaðra til jafns við aðra.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis tók afstöðu til þessa atriðis í nefndaráliti sínu með breytingatillögunni á lögræðislögunum. Nefndin áréttaði að frumvarpið fjalli ekki um fatlað fólk eða sjúklinga út af fyrir sig: Lögræðislögin væru almenn lög og vörðuðu alla einstaklinga.
Eftir nána skoðun á efnisinntaki þeirra skilyrða sem er grundvöllur réttindaskerðingar, t.a.m. lögræðissviptingarinnar eða nauðungarvistunar annars vegar, og síðan skilgreiningar samningsins á fötlun hins vegar, er erfitt að fallast á þetta sjónarmið nefndarinnar. Lögræðislög innihalda vissulega almenn ákvæði líkt og að allir einstaklingar skuli öðlast lögræði við 18 ára aldur. Á móti kemur að stór hluti ákvæða lögræðislaga eiga aðeins við um afmarkaðan hóp einstaklinga, sá hópur er sá eini sem kemur til greina þegar að því kemur að uppfylla þau skilyrði er þarf til þess að skerða megi réttindi: Sá hópur samanstendur af einstaklingum með fötlun.
Skilyrði fyrir lögræðissviptingu samkvæmt 4. gr. lögræðislaga eru t.d. með þeim hætti að einstaklingar með fatlanir uppfylla þau. Önnur ákvæði laganna taka síðan sérstaklega til þess fagfólks sem bera skyldur og ábyrgð gagnvart þessum hópi, þar með talið dómara, heilbrigðisstarfsfólks, lækna og opinberra starfsmanna.
Lögræðislög eru því almenns eðlis en hafa þó sérstök áhrif á líf og réttindi fatlaðs fólks. Áhrif sem vert er að líta til í ljósi þess að samningurinn leggur bann við hvers kyns mismunun gegn fötluðum sem hefur þann tilgang, eða þau áhrif, að fatlað fólk sitji skör lægra en aðrir.
Umorða mætti núverandi skilyrði 4. gr. lögræðislaga til lögræðissviptingar á þennan hátt:
Heimilt er að svipta einstakling lögræði ef;
- Hann er ekki talinn fær um að taka ákvarðanir er varða persónulega hagi sína eða fé
Dómara er í raun frjálst að meta færni varnaraðila til þess að taka ákvarðanir er varða persónulega hagi sína eða fé. Þó ber að geta þeirra sjónarmiða er fram koma í greinargerð frumvarps lögræðislaga frá 1997 en þar stendur:
„Ekki er nauðsynlegt að viðkomandi sé algjörlega ófær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé, en gera verður þá kröfu að um veruleg frávik frá eðlilegu ástandi sé að ræða.“
- Af völdum fötlunar[6]
Annað skilyrðið til lögræðissviptingar er vottorð læknis þess efnis að varnaraðili hafi greiningu fötlunar eða sjúkdóms sem jafna megi til fötlunar, sem valdi því að hann geti talist ófær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé. Greinargerð með frumvarpi lögræðislaganna frá árinu 1997 undirstrikar mikilvægi þess að læknisvottorð liggi fyrir dómara áður en úrskurðað er vegna kröfu um lögræðissviptingu. Þar kemur fram að vottorð læknis um sjúkdómsgreiningu eða skerðingu varnaraðila (sem fellur undir skilgreiningu á fötlun skv. í 1. grein samnings S.þ í öllum tilvikum, miðað við orðalag 4. greinar),[7]sé mikilvægasta sönnunargagnið við mat dómara á þörf fyrir lögræðissviptingu.
- Enda hafi önnur og vægari úrræði verið fullreynd.
Dómara er skylt að athuga hvort möguleikar varnaraðila til þess að nýta sér vægari úrræði hafi verið kannaðir. Til dæmis ber að líta til þess hvort persónulegur talsmaður gæti aðstoðað viðkomandi við að ráða persónulegum högum sínum eða fé. Þess ber þó að geta að persónulegir talsmenn fá ekki laun fyrir að aðstoða hinn fatlaða einstakling. Hafi varnaraðili lítil fjárráð og/eða lítil sem engin fjölskyldutengsl má ætla að erfitt geti reynst að finna til þess bæra manneskju sem tilbúin væri að sinna hlutverki talsmanns í sjálfboðastafi.
Með öðrum orðum má segja að meti dómari sem svo, með fengnu mati frá lækni, að ef fötlun einstaklings valdi því að hann hafi skerta getu til ákvarðanatöku er það tilefni til lögræðissviptingar enda standa úrræði sem gera honum kleift að njóta réttinda sinna til jafns við aðra ekki til boða.
Af ofangreindu má sjá að fatlað fólk (í skilningi skilgreiningar samnings S.þ) er í miklum meirihluta eða eini mögulegi hópur fólks sem hægt er að svipta lögræði samkvæmt 4. gr. lögræðislaga. Ef svo er, þá þegar af þeim ástæðum uppfyllir núverandi orðalag 4. gr. lögræðislaga ekki kröfur 5. og 12. gr. samnings S.þ um bann við mismunun á grundvelli fötlunar og jafnrar réttarstöðu fatlaðs fólks til lögformlegs hæfis.
Loks ber að nefna að 4. gr. lögræðislaga byggir heimild til lögræðissviptingar ekki einvörðungu á grundvelli fötlunar einstaklings heldur einnig á mati dómara á skertu andlegu hæfi af völdum fötlunar. Aðildarríkjum samningsins er óheimilt að skerða lögformlegt hæfi fatlaðra einstaklinga á grundvelli þess að þeir eru taldir búa við skert andlegt hæfi og ber þess í stað að tryggja að þeir njóti stuðnings óháðra aðila til þess að taka sjálfstæðar ákvarðanir í sínu lífi.
3. Ólögmæt skerðing á lögformlegu hæfi
Nefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks gerir í athugasemdum sínum greinarmun á lögformlegu hæfi (e. legal capacity) og andlegu hæfi (e. mental capacity) einstaklinga. Skerðingar á sjálfsákvörðunarrétti einstaklinga á grundvelli mats á skertu andlegu hæfi þeirra er í flestum tilfellum brot á 12. og 5. grein samningsins.
Lögformlegt hæfi er tvíþætt. Í fyrsta lagi felst í því rétthæfi (e. legal standing) og í öðru lagi gerhæfi (e. legal agency). Í rétthæfi felst getan til þess að bera skyldur og njóta réttinda. Allar manneskjur hafa meðfætt rétthæfi og halda því til dauðadags. Í gerhæfi felst „rétturinn til þess að ráðstafa og fara með ofangreind réttindi og takast á hendur skuldbindingar í eigin nafni.“[8] Gerhæfi er grunnforsenda innihaldsríkrar þáttöku í samfélaginu.
Andlegt hæfi vísar til hæfni eða færni einstaklings til þess að taka ákvarðanir. Færni einstaklinga til þess að taka ákvarðanir er eðlilega misjafnlega góð. Slík færni getur jafnframt verið misjafnlega góð í margvíslegu tilliti og grundvallast á samfélagslegum skilyrðum eða umhverfisþáttum svo dæmi séu nefnd.
Samkvæmt nefnd S.þ hafa flest aðildaríki samningsins lagt andlegt og lögformlegt hæfi að jöfnu í lagasetningu sinni. Skýrslur aðildarríkjanna til nefndarinnar hafi leitt í ljós þá almennu framkvæmd, að sé manneskja álitin hafa skerta getu til ákvarðanatöku, oft á grundvelli þroskaskerðingar eða geðfötlunar, leiði það til þess að lögformlegt hæfi hennar til þess að taka ákveðna ákvörðun er fjarlægt (t.d. með lögræðissviptingu, fjárræðis- eða sjálfræðissviptingu, nauðungarvistun eða þvingaðri lyfjagjöf).[9]
Mikilvægt er að aðgreina lögformlegt hæfi einstaklinga frá andlegu hæfi þeirra. Nefnd S.þ ítrekar í athugasemd sinni að skerðing á lögformlegu hæfi einstaklinga á grundvelli ætlaðrar eða raunverulegrar skerðingar á andlegri hæfi þeirra gangi gegn ákvæðum samningsins. Slík skerðing brjóti í bága við 5. grein og 12. grein samningsins, enda feli hún í sér mismunun á grundvelli fötlunar. Andlegt eða vitsmunalegt hæfi sé umdeilt hugtak en ekki hlutlaust, vísindalegt og náttúrulegt fyrirbrigði. Nefndin áréttar að andlegt eða vitsmunalegt hæfi er ákveðið í félagslegu og pólitísku samhengi. Þá sé ljóst að fagfólk, vísindamenn og fræðimenn sem meta eiga andlegt og vitsmunalegt hæfi geri það óhjákvæmilega í félagslegu og pólitísku samhengi.
Í almennri athugasemd sinni útlistar nefnd S.þ þrjár mismunandi aðferðir við skerðingu lögformlegs hæfis á grundvelli fötlunar og/eða ætlaðrar eða raunverulegrar skerðingar andlegs hæfis.
Fyrst ber að nefna svokallaða ástandsnálgun (e. status approach), þar sem lögformlegt hæfi einstaklings er skert á grundvelli sjúkdómsgreiningar eða greiningar annarar fötlunar. Næst ber að nefna svokallaða afleiðingarnálgun (e. outcome approach), þar sem lögformlegt hæfi er skert á grundvelli þess að einstaklingur er talinn hafa tekið ákvörðun eða ákvarðanir sem taldar eru hafðar neikvæðar afleiðingar. Að lokum skal nefna svokallaða hæfinálgun (e. functional approach) þar sem mat þess efnis að einstaklingur er talinn hafa skerta getu til ákvarðanatöku er notað til grundvallar skerðingu á lögformlegu hæfi.
Ofangreindar nálganir eiga það sameiginlegt að fötlun einstaklings og/eða geta hans til ákvarðanatöku er notuð til þess að réttlæta skerðingu á lögformlegu hæfi einstaklingsins. Álit nefndarinnar er afdráttarlaust um að 12. grein samningsins heimilar ekki slíka skerðingu. Aðildarríkjum ber þess í stað skylda til þess að sjá einstaklingum fyrir viðeigandi stuðningi við ákvarðanatöku.
3.1. Staðgengilsákvarðanataka
Réttur fatlaðra til stuðnings við ákvarðanatöku felur í sér grundvallarbreytingu á þeirri nálgun sem viðgengist hefur gagnvart sjálfsákvörðunarrétti fatlaðs fólks fram að samþykkt samningsins. Skylda aðildaríkja til þess að veita fötluðum einstaklingum stuðning til nýtingar gerhæfis í samræmi við vilja þeirra og gildismat leiðir af sér að kerfi sem takmarka lögformlegt hæfi fatlaðra og virða ekki vilja og gildismat hins fatlaða er í andstöðu við samninginn. Hér er sérstaklega átt við þau kerfi sem byggja á svokallaðri staðgengilsákvarðanatöku (e. substitute deicision making).
Skilgreina má kerfi byggð á staðgengilsákvarðanatöku sem kerfi þar sem:
- Einstaklingur er sviptur lögformlegu hæfi (á við þó sviptingin nái aðeins til einnar afmarkaðrar ákvörðunar).
- Annar aðili en sá sem sviptingu sætir getur skipað staðgengil til ákvarðanatöku fyrir hönd hins svipta. Skipa má staðgengil án samþykkis og jafnvel gegn vilja hins svipta.
- Ákvarðanir þær sem staðgengill tekur eru byggðar á því sem staðgengill metur að sé hag hins svipta fyrir bestu en ekki sjálfstæðum vilja og gildismati hins svipta einstaklings.[10]
Fjöldi ákvæða núgildandi lögræðislaga falla undir skilgreininguna á staðgengisákvarðanatöku. Sérstaklega ber þar að nefna þau ákvæði laganna er varða lögræðissviptingu, skipun lögráðamanna og ráðsmanna og valdheimildir þeirra. Í stórum dráttum er lögræðissviptum einstaklingi skipaður lögráðamaður sem tekur ákvarðanir fyrir hönd hins lögræðissvipta og ráðstafar gerhæfi hans eftir því sem best er talið henta hag hins svipta hverju sinni. Vilji hins lögræðissvipta er ekki tekinn til greina nema að mjög takmörkuðu leiti og sjálfsákvörðunarréttur hans er í algjöru lágmarki. Þannig gera lögræðislög t.d. ekki ráð fyrir því að lögræðissviptur einstaklingur geti óskað eftir öðrum lögráðamanni en þeim sem honum hefur verið skipaður, án tillits til aðstæðna.
4. Stuðningur við ákvarðanatöku
Fatlaðir einstaklingar eiga rétt á að hljóta viðeigandi stuðning til þess að þeir fái notið lögformlegs hæfis til jafns við aðra. Þannig skuli fatlaðir njóta stuðnings við ákvarðanatöku (e. supported decision making). Ákvæði samnings S.þ kveða á um að aðildarríkjum er skylt að gera allar nauðsynlegar ráðstafanir til þess að tryggja fötluðum einstaklingum þann stuðning sem þeir þarfnast til þess að njóta lögformlegs hæfis (3. tl. 12. gr.). Nefnd S.þ hefur tekið það skýrt fram að ekki nægir að innleiða kerfi sem veitir stuðning við ákvarðanatöku samhliða kerfi sem byggir á staðgengilsákvarðanatöku. Ákvæði sáttmálans krefjist þess að staðgengilsákvarðanataka fyrir fatlaða einstaklinga verði lögð niður með öllu. Ennfremur inniheldur samningurinn ákveðin verndarsjónarmið sem ríki verða að uppfylla við veitingu stuðnings við ákvarðanatöku (4. tl. 12. gr.).
4.1. Verndarsjónarmið gagnvart stuðningi við ákvarðanatöku skv. 4. tl. 12. gr.
Fyrst og fremst verður stuðningur við ákvarðanatöku ávallt að byggja á því að koma vilja og gildismati (e. will and preferences) einstaklingsins á framfæri eða í framkvæmd. Stuðningsaðila er ekki ætlað að leggja sjálfstætt mat á hvað stuðningsþega er fyrir bestu líkt og um er að ræða í staðgengilsákvörðunarkerfi, heldur er hlutverk hans að styðja viðkomandi við að taka ákvörðun út frá sínum persónulegu óskum. Stuðningsþegar eiga að geta hafnað stuðningi, stuðningsaðila og fyrirkomulagi stuðnings hvenær sem er. Af þessum ástæðum er talið hæpið að samningurinn rúmi heimild til lögræðissviptingar þegar hluti forsenda fyrir sviptingu felst í fötlun viðkomandi.
Stuðningur við nýtingu lögformlegs hæfis verður að vera aðgengilegur öllum þeim sem hans þarfnast, án tillits til fjárhags, búsetu eða annara haga viðkomandi. Tjáningarmáti einstaklinga má ekki standa í vegi fyrir stuðningi, jafnvel þó svo hann sé óvenjulegur eða sjaldgæfur. Stuðningur verður að vera einstaklingi að kostnaðarlausu eða kostnaðarlítill.
Mikilvægt er að lagalegar verndarráðstafanir séu til staðar til þess að verjast misbeitingu valds og hagsmunaárekstra stuðningsaðila gagnvart hagsmunum stuðningsþega. Stuðninginn skal sníða að þörfum hvers og eins, standa yfir eins stutt og mögulegt er og sæta reglulega endurskoðun til þess bærra sjálfstæðra og óháðra úrskurðaraðila. Eins verða lög að viðurkenna að stuðningsaðilar njóti lagalegrar viðurkenningar sem slíkir. Loks ber að nefna að stuðning við nýtingu gerhæfis má aldrei nýta til þess að réttlæta skerðingu á mannréttindum stuðningsþega.
5. Lögmæt skerðing á lögformlegu hæfi
Þess ber að geta að samningur S.þ felur ekki í sér skyldu aðildarríkja til þess að afnema alfarið heimildir til lögræðissviptingar. Ríki hafi vissulega getu til þess að skerða lögformlegt hæfi einstaklinga í vissum tilfellum, til dæmis á grundvelli sakfellingar eða gjaldþrots einstaklinga. Skerðing á lögformlegu hæfi má hins vegar ekki grundvallast á persónueinkennum eins og kyni, kynþætti eða fötlun, eða hafa þann tilgang eða valda þeirri niðurstöðu að aðilar séu meðhöndlaðir öðruvísi á grundvelli þess.
Hér er lykilviðhorf sem vert er að venjast til að skilja samninginn: Fötlun getur ekki verið grundvöllur inngrips. Ef lagaskilyrði kveða á um að fötlun (eins og hún er skilgreind í samningnum) er nauðsynleg forsenda inngrips í réttindi einstaklings, þá á inngripið aldrei rétt á sér.
Skilyrði 4. gr. lögræðislaga byggir á ástands- og afleiðinganálgun[11] og samningurinn heimilar ekki slíka nálgun. Mögulega er hægt að fara þá leið að breyta skilyrðum 4. gr. og jafnframt fylgja lágmarksskilyrðum samningsins. Sú afstaða að samningurinn heimili lögræðissviptingu í einhverjum formum er umdeild meðal fræðimanna. Í raun er ekki að sjá annað nema sú túlkun að það sé leið fær í þeim efnum í andstöðu við úrskurði nefndar samningsins. En ef svo reynist að slíkt er í einhverjum tilvikum mögulegt er afmörkuð hæfinálgun, að því er virðist besta nálgunin.[12] Afmörkuð hæfinálgun felur í sér tímabundna skerðingu á hæfi einstaklingsins til afmarkaðrar tegundar ákvarðanatöku sem einstaklingur er metinn ófær um að taka. Slík skerðing yrði aðeins leyfð ef stuðningur við ákvarðanatöku gengur alls ekki og hætta er á alvarlegum afleiðingum fyrir líf og heilsu viðkomandi eða annara.
5.2. Afstaða mannréttindadómstóls Evrópu
Mannréttindadómstóll Evrópu gefur aðildarríkjum mikið svigrúm til mats á því hvenær svipta megi einstaklinga lögræði án þess að það brjóti í bága við t.d. 8. Grein mannréttindasáttmálans. Þó má á dómum MDE greina ákveðin lágmarksskilyrði sem ríki þurfi að uppfylla til þess að virða ákvæði sáttmálans. Í málinu Ivinovic gegn Króatíu var deilt um réttmæti ákvörðunar dómstóla aðidlarríkis að svipta einstakling lögræði að hluta. MDE taldi skilyrði lögræðissviptingar ekki vera til staðar þrátt fyrir mat tveggja lækna um að það væri einstaklingnum fyrir bestu og þrátt fyrir að sýnt var fram á andlegt vanhæfi og skuldasöfnuð einstaklingsins. Ástæðan var að dómstólar eiga að athuga sjálfir allar nauðsynlegar upplýsingar og leggja sjálfstætt mat á nauðsyn sviptingar. Ef eitthvað vægara úrræði er mögulegt þá er dómstólum skylt að horfa til þess.
Tillaga að úrbótum
Til langframa litið mætti líta til fyrirmyndarlöggjafar annarra ríkja líkt og Svíþjóðar og Kanada sem bæði hafa hlotið lof nefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir að standa vel að fullgildingu samningsins. Þar að auki má finna nokkrar aðrar mögulegar útfærslur á framkvæmd samningsins í ritum fræðimanna sem sum hver eru í þróun innan aðildarríkja samningsins.
Við undirbúning frumvarpsins óskaði ráðuneytið eftir ráðleggingum Helgu Baldvinsdóttur Bjargardóttur, sérfræðingi í mannréttindum fatlaðs fólks. Helga kynnti ráðuneytinu rannsóknir sínar á 12. grein samningsins og kveðst ráðuneytið hafa horft til þeirra athugasemda og ráðlegginga sem fram komu í máli Helgu er vörðuðu verðandi breytingar á lögræðislögum.
Æskilegt hefði verið að taka fyllilega til greina þær úrbætur sem Helga leggur til að gerðar verði á 4. grein lögræðislaga og öðrum ákvæðum laganna, í meistararitgerð sinni í lögfræði.[13] Þannig hefði íslensk löggjöf færst nær þeim kröfum sem 12. og 5. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra gera gagnvart verndun lögformlegs hæfis fatlaðra til jafns við aðra.
Helga lagði til að 4. grein lögræðislaga yrði svohljóðandi:
„Að því gefnu að önnur og vægari úrræði í formi aðstoðar hafi verið fullreynd, er heimilt að svipta mann lögræði með úrskurði dómara, sjálfræði einu sér, fjárræði einu sér eða hvoru tveggja. Skilyrði sviptingar eru að brýn þörf sé á sviptingu og miðast við að andleg vanheilsa sé af þeirri tegund og á því stigi að hún réttlæti slík inngrip. Við mat á þörf sviptingar skal ávalt taka mið af stöðu varnaraðila með hliðsjón af þeirri þjónustu og aðstoð sem hann á rétt á samkvæmt lögum. Svipting skal aldrei standa lengur en brýna nauðsyn ber til og skal ákvörðun um sviptingu endurskoðuð reglulega og aldrei sjaldnar en á 6 mánaða fresti í fyrsta sinn að 6 mánuðum liðnum frá úrskurði.“
Með reglulegri lögbundinni endurskoðun lögræðissviptingar væri komið til móts við þá verndarráðstöfun sem finna má í 4. tl. 12 gr. samnings S.þ um að stuðningur við ákvarðanatöku skuli vara í sem skemmstan tíma og sæta reglubundinni endurskuðun.
Einnig má nefna að nauðsynlegt er að persónulegir talsmenn eigi möguleika að geta fengið greitt fyrir störf sín. Annað er óréttlætanlegt og í raun brot á réttindum þeirra að setja svo íþyngjandi lagaákvæði á störf sem vinna á endurgjaldslaust. Með launagreiðslum til persónulegra talsmanna mætti einnig auka hlutverk þeirra gagnvart verndun réttinda hins fatlaðra einstaklings (t.d. gagnvart ákvörðunum lögræðismanna) og ábyrgð talsmanna gagnvart lögum.
III. Nauðungarvistanir og þvinguð meðferð
Samkvæmt nefnd Sameinuðu þjóðanna er aðildarríkjum samningsins óheimilt að beita fatlaða einstaklinga nauðung af nokkru tagi. Nauðungarvistun, þvinguð lyfjagjöf og önnur þvinguð meðferð gagnvart fötluðum sé brot á samningnum í öllum tilfellum, einnig í neyðartilfellum. Í stað þvingaðrar meðferðar og/eða frelsissviptingar skuli fatlaðir njóta stuðnings sem virðir frelsi þeirra til þess að neita læknismeðferð í hvívetna. Slíkt megi til dæmis gera með notkun bráðateyma sem nota samtalsaðferðir, eða með rekstri skjólhúsa. Önnur leið til þess að virða frelsi og mannhelgi fatlaðra væri með gerð framtíðaráætlunar (e. advanced planning) fatlaðs einstaklings, um hvernig hann vilji að meðferð sinni sé háttað komi til þess að hann geti ekki komið vilja sínum á framfæri vegna veikinda. Þó ættu einstaklingar ávalt að geta ógilt ákvæði framtíðaráætlunarinnar á hvaða stigi máls sem er.
Núgildandi lögræðislög standast því með engu móti kröfur samningsins samkvæmt túlkun nefndarinnar. Nauðungarvistun einstaklings á þeim grunni einum að hann sé fatlaður (þjáist af alvarlegum geðsjúkdómi) er til dæmis skýrt brot á b. lið 2. tl. 14. gr., 19. gr. og 22. gr. samningsins. Þá er þvinguð meðferð á fötluðum einstaklingi óheimil samkvæmt d. lið 25.gr., 12. gr., 1. tl. 15. gr., 16. gr., 17. gr. og 22. grein samningsins eins og fram kemur í almennri athugasemd nefndar Sameinuðu þjóðanna.
Sérstakur sendiboði Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annari vanvirðandi eða ómannúðlegri meðferð hefur tekið undir þessa túlkun nefndar Sþ á samningnum. Ennfremur áréttaði hann að þvinguð lyfjagjöf sem veldur því að einstaklingur verður sljór, eða titrandi og feli í sér mikinn andlegan eða líkamlegan sársauka fyrir viðkomandi falli undir pyndingar samkvæmt skilgreiningu Samnings sameinuðu þjóðanna um varnir gegn pyndingum og annarri vanvirðandi eða ómannúðlegri meðferð.[14]
Varðandi þvingaða lyfjagjöf þá hefur MDE talið slíkt aðeins heimilað þegar kveðið er á um slíkt í lögum með fullnægjandi skilyrðum, sbr. X gegn Finnlandi. Í því máli var ekki tryggt með fullnægjandi hætti, vernd gegn geðþóttaákvörðunum. Í málinu var ákvörðunarvald einungis í höndum læknis sem sætti ekki eftirliti dómstóla með fullnægjandi hætti. MDE taldi slíkt brjóta í bága við eðlilegar varrúaðar kröfur. Af dómnum að ráða brýtur 2. mgr. 19 gr. lögræðislaga því skýrt gegn réttindum tryggðum í MSE. Lögin verða að kveða á um afmörkuð tilvik, grundvöll ákvörðunar læknis (ríkir almanna eða einkahamgsunir) og mögulegri frestun réttaráhrifa í kjölfar kæru vegna beitingar þvingaðrar meðferðar.
1. Mismunandi túlkun á samningi S.þ
Túlkun nefndar S.þ þess efnis að samningurinn kveði á um að aðildarríkjum sé með öllu óheimilt að beita nauðungarvistunum og þvingaðri meðferð af nokkru tagi gagnvart fötluðum er þó umdeild meðal fræðimanna. Fram hefur komið sú gagnrýni að sú túlkun taki með engu móti á þeim margvíslegu alvarlegu afleiðingum sem slíkt bann getur haft í för með sér fyrir hætt komna einstaklinga sem og samfélög þeirra í heild. Ljóst sé að í sumum tilfellum krefjist hagsmunir hins fatlaða einstaklings þess að yfirvöld komi í veg fyrir að hann valdi sjálfum sér lífshættulegum skaða og túlkun nefndarinnar segi ekki fyrir um hvernig slíkt verði gert án ákveðinnar heimildar til nauðungar í lögum. Sömu sjónarmið eigi við þegar ástand einstaklings er þannig háttað að hann er hættulegur lífi og heilsu annarra í samfélaginu.
Önnur túlkun samningsins er möguleg og leyfir notkun nauðungar í ákveðnum neyðartilfellum sem afmörkuð eru á þann hátt í lögum að þau mismuna ekki fólki á grundvelli fötlunar.[15] Æskilegt er fyrir verðandi aðildaríki að fullgilda samninginn með fyrirvara um þá túlkun, áður en samningurinn er fullgiltur til þess að forðast það að nefndin úrskurði ríkið brotlegt við ákvæði samningsins samkvæmt eigin túlkun á þeim. Nákvæmt innihald og uppsetning slíks kerfis og þess fyrirvara sem áætluð notkun þess krefðist við fullgildingu samningsins er þó ekki viðfangsefni þessarar úttektar.
2. Skilyrði til nauðungarvistunar og skilgreining fötlunar
Í 2. tölulið 19. gr. lögræðislaga segir:
,,Þó getur læknir ákveðið að sjálfráða maður skuli færður og vistaður nauðugur í sjúkrahúsi ef hann er haldinn alvarlegum geðsjúkdómi eða verulegar líkur eru taldar á að svo sé eða ástand hans er þannig að jafna megi til alvarlegs geðsjúkdóms. Sama gildir ef maður á við alvarlega áfengisfíkn að stríða eða ofnautn ávana- og fíkniefna.“
Hugtakið ,,alvarlegur geðsjúkdómur“ fellur undir 2. mgr. 2. gr. laga um málefni fatlaðs fólks undir ,,geðfatlaða“, sömuleiðis fellur fíknisjúkdómur undir það sama, sbr. samræmisskýringu 2. mgr. 1. gr., þeir sem taldir eru vera haldnir alvarlegum geðsjúkdómi þurfa ekki að vera fatlaðir né þeir sem ástand síns vegna megi jafna til alvarlegs geðsjúkdóms. Þó hefur Mannréttindadómstóll Evrópu t.d. úrskurðað að nauðungarvistuð manneskja, þar sem grundvöllur innlagnar bar að vegna andlegra veikinda, teljist fatlaður einstaklingur (í það minnsta í skilningi fyrir réttindum gagnvart dómstólum, sbr. M.S. gegn Króatíu (75450/12)).
Dómstóllinn hefur ítrekað að þetta úrræði komi aðeins til skoðunar enda sé það nauðsynleg til verndar lífi og heilsu viðkomandi eða ríkir almannahagsmunir komi til.
Ákvæði lögræðislaga um nauðungarvistanir og þvingaða meðferð gilda þó mögulega einnig um meðferð og réttindi þeirra sem ekki teljast fatlaðir samkvæmt skilgreiningu samningsins eða íslenskum lögum en sæta þó nauðung. Í þessu tilliti er vert að endurtaka að samningurinn um réttindi fatlaðs fólks inniheldur ekki ný réttindi heldur felur í sér ítrekun á þeim réttindum sem fatlaðir eiga að njóta til jafns við aðra og þeim skyldum sem hvíla á aðildarríkjum til þess að tryggja að svo verði. Því er vert að skoða sérstaklega aðrar alþjóðlegar skuldbindingar íslenska ríkisins sem gilda um alla einstaklinga sem sæta nauðungarvistun og þvingaðri lyfjameðferð eða annars konar þvingaðri meðferð innan íslenskrar lögsögu.
MDE hefur með ítrekaðri dómaframkvæmd sett frá þrjú skilyrði fyrir nauðungarvistun (sjá hér t.a.m. Sýkora gegn Tékklandi): 1) Sýnt sé fram á með áreiðanlegum hætti að einstaklingur búi við andlega skerðingu (e. unsoundness of mind) þ.e. að sýnt sé fram á geðsjúkdóm fyrir viðeigandi stjórnvaldi frá hlutlægu læknisfræðilegum sjónarmiðum. 2) að geðsjúkdómurinn sé af því eðli eða stigi að slíkt kalli til nauðungarvistunar. 3) að framlenging vistunarinnar er aðeins gerð út frá reglulegri sannaðri tilvist þess sjúkdóms hverju sinni.
Varðandi kröfur til dómstóla í nauðungarvistunarmálum hefur MDE talið dómstóla aðildarríkja bera ríkar kröfur til þess að leggja sjálfstætt mat á skýrslur lækna. Því til stuðnings má nefna (Lashin gegn Rússlandi) þar sem MDE taldi dómstól aðidlarríkis ekki hafa uppfyllt það skilyrði. MDE lagði því sérstakt mat á skýrslur tveggja lækna, en undir venjulegum kringumstæðum myndi MDE aðeins leggja mat á hvort mat dómstóla aðildarríkja uppfylltu ekki örugglega kröfur til fagmennsku. Í þessum dómi fellst líka krafa um fagmennsku á mati læknaskýrslna.
3. Lögræðislög og aðrar alþjóðlegar skuldbindingar Íslands
Mannréttindasáttmáli Evrópu kveður á um bann við pyndingum og annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð og bannið má ennfremur finna í fjölda annara milliríkjasamninga sem Ísland á aðild að. Til þess að tryggja sem best vernd einstaklinga gegn pyndingum, samþykktu aðildarríki Evrópuráðsins Evrópusamningu um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Samningurinn setti á fót Evrópunefnd um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu (CPT-nefndin).
Hlutverk CPT-nefndarinnar er að kanna með vitjunum, meðferð manna sem sætt hafa frelsissviptingu hvers konar í því skyni að efla, ef nauðsyn krefur, vernd þeirra gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Nefndin heimsækir aðildarríki og skilar skýrslum með tilmælum um atriði í lögum eða framkvæmd aðildarríkja sem bæta þurfi til að tryggja betur vernd gegn pyndingum. Mannréttindadómstóll Evrópu lítur til skýrslna nefndarinnar þegar við á í úrlausn mála fyrir dómstólnum og hefur ítrekað mikilvægi þess að aðildarríki samninganna fylgi tilmælum CPT- nefndarinnar. Nefndin hefur heimsótt Ísland fjórum sinnum en tilmæli nefndarinnar er varða galla á lögræðislögunum og þá sérstaklega ákvæði þeirra um framkvæmd nauðungarvistunar hafa tekið fáum breytingum frá fyrstu heimsókn nefndarinnar.
Í greinargerð með lögum um breytingar á lögræðislögum kemur fram að breytingunum var ætlað að koma til móts við athugasemdir CPT nefndarinnar til íslenskra stjórnvalda er vörðuðu lögræðislögin og framkvæmd þeirra.[16] Ekki verður séð að slíkt hafi verið gert nema að mjög takmörkuðu leiti. Flestar ábendingar CPT nenfdarinnar um úrbætur eiga enn fyllilega við nýja útgáfu laganna.
3.1. Helstu tilmæli CPT-nefndarinnar um þarfar úrbætur sem nýleg breyting lögræðislaga tekur ekki á:
- Þörf er á heildarendurskoðun allra laga er snúa að málefnum fólks með andleg veikindi með það að markmiði að semja heildstæða geðheilbrigðislöggjöf sem taki á öllum helstu álitamálum er varða réttindi og þjónustu við þennan hóp ( Mental Health Act).
- Æskilegt er að breyta skilyrðum til nauðungarvistunar skv. 19. gr. á þann veg að vistunin verði að teljast nauðsynleg til verndar lífi og heilsu hins vistaðra eða annara.
- Breyta þurfi lögræðislögum í þá átt að úrskurði dómari ekki hversu lengi nauðungarvistun skuli vara (eða vari hún lengur lengur en sex mánuði) skuli áframhaldandi þörf fyrir vistunina endurmetin að frumkvæði dómstóla með reglulegu millibili.
- Tryggja þurfi að ákvörðun um áframhaldandi nauðungarvistun einstaklings þegar frestur til úrskurðar sýslumanns (þá dómsmálaráðuneytis) rennur út, verði byggð á mati óháðs sérfræðilæknis, öðrum en þeim sem tók upprunalega ákvörðun um þörf á nauðungarvistun einstaklingsins.
- Að afmarka verði á skýran hátt þau tilfelli sem læknum er heimilað að beita þvingaðri meðferð og þvingaðri lyfjameðferð samkvæmt 28. gr. 2. tl. lögræðislaga gegn einstaklingum sem sæta nauðungarvistun með samþykki sýslumanns (þá Dómsmálaráðuneytisins).
- Semja þurfi ítarlega stefnu um beitingu nauðungar fyrir starfsmenn allra stofnana er hafa með höndum nauðungarvistun einstaklinga.
- Semja þurfi sérstaka reglugerð um beitingu nauðungar fyrir starfsmenn allra stofnana er hafa með höndum nauðungarvistun einstaklinga.
- Að koma ætti á fót sjálfstæðri nefnd eða stofnun sem hefur það hlutverk að fara í reglulegar eftirlitsferðir til stofnana sem vista nauðungarvistaða einstaklinga. Starfsmenn á vegum eftirlitsstofnunarinnar þyrftu að hafa heimildir til þess að taka viðtöl við vistmenn í einrúmi, geta jafnvel tekið við kvörtunum og kærum frá vistmönnum til meðferðar. Eins þyrfti eftirlitsstofnunin að hafa getu til þess að gefa út ályktanir til stofnananna um ágalla og æskilegar úrbætur á þeim með reglulegu millibili.
3.2. Afstaða Íslenska ríkisins gagnvart tilmælum CPT-nefndarinnar sem breyting lögræðislaga nær ekki til:
Vert er að taka séstaklega til skoðunar afstöðu Íslands gagnvart þeim tilmælum CPT-nefndarinnar sem breyting lögræðislaga nær ekki til. Hana má ráða af svörum íslenska ríkisins til CPT- nefndarinnar í kjölfar heimsókna hennar til landsins.
- Íslenska ríkið telur það ekki þjóna hagsmunum fólks með geðraskanir og geðfatlanir að setja heildstæð lög um réttindi og þjónustu við þennan hóp. Íslensk lög nái nú þegar yfir þessa þætti þó ekki sé þau að finna í einni samstæðri löggjöf.
Vert er að benda á ýmsa kosti þess að löggjafinn setji heildstæð lög um réttindi og skyldur, sem og veitingu þjónustu við fólk með geðraskanir og geðfatlanir. Fyrir það fyrsta myndi slík löggjöf auka réttaröryggi þessa fjölbreytta hóps með því að hafa öll helstu lög er þau varða aðgengileg í einum lögum og þar með auðvelda þeim að öðlast fyllri skilning á réttarstöðu sinni. Færa má rök fyrir því að núverandi lagaumhverfi valdi því að notendur þarfnist helst aðstoðar lögfræðings til þess að geta öðlast grunnskilning á inntaki réttarstöðu sinnar.
Eins gætu slík lög tryggt samræmi og jafnrétti aðila í þjónustu og meðferð innan geðheilbrigðiskerfisins. Í því samhengi er t.d. vert að minnast á að ekki er augljóst að lögræðislögin nái einnig yfir réttindi ósakhæfra brotamanna sem vistaðir eru nauðugir á stofnun. Fram kom í skýrslu nefndarinnar að þau lög er gilda um vistun ósakhæfra brotamanna á stofnunum séu úrelt og verði að bæta. Með tilkomu heildstæðra laga nyti þessi hópur betri réttarstöðu til jafns við réttarstöðu annarra vistmanna lokaðra deilda geðheilbrigðiskerfisins sem sæta nauðungarvistun eftir því sem við á.
Heildstæður lagabálkur gæti einnig tryggt að lögræðissvipting og nauðungarvistun yrði aðeins beitt í algjörum undantekningartilfellum þegar önnur form stuðnings, sem greina mætti í sömu lögum, hafa verið reynd. Lög þessi gætu innihaldið framúrskarandi túlkun löggjafans á ákvæðum samnings S.þ um jafna réttarstöðu fatlaðra einstaklinga. Slík túlkun gæti til dæmis byggt á afmörkuðum virkninálgunarskilyrðum til lögræðissviptingar og nauðungarvistunar í algjörum neyðartilfellum, líkt og er í þróun í Norður – Írlandi.
- Í svörum íslenska ríkisins er tekið undir það sjónarmið nefndarinnar að skilyrði 2. tl. 19. gr. til nauðungarvistunar væri óljóst en kvað erfitt að meta hvernig hægt væri að afmarka þau frekar.
Afstaða íslenska ríkisins gagnvart þessum tilmælum er torskiljanleg. Augljóst er að nefndin leggur til að skilyrt verði með lögum að engan megi vista nauðugan á sjúkrahúsi nema að slíkt sé nauðsynlegt til verndar lífi og heilsu viðkomandi eða til verndar lífi og heilsu annara. Í ljósi þess að nauðungarvistun felur í sér mjög alvarlega frelsissviptingu og inngrip inn í frelsi og sjálfsákvörðunarrétt einstaklinga er einkar bagalegt að nýleg breyting lögræðislaga hafi ekki orðið við þessum tilmælum CPT-nefndarinnar.
- Svar yfirvalda við tilmælum nefndarinnar um að lögfesta ætti reglulega endurskoðun nauðsynjar áframhaldandi nauðungarvistunar einstaklinga felur ekki í sér afstöðu gagnvart þeim tillögum. Þess í stað svara yfirvöld með útskýringu á núverandi fyrirkomulagi eftirlits dómstóla á áframhaldandi nauðsyn nauðungarvistunar þar sem frumkvæðisathugun dómstóla er ekki fyrir hendi. Ennfremur lýstu stjórnvöld því yfir að þau myndu hafa þessi tilmæli nefndarinnar í huga þegar/ef ráðist yrði í endurskoðun á lögræðislögunum.
Ekki er nóg að nauðungarvistaðir hafi rétt til þess að kæra áframhaldandi vistun til dómstóla sjálfir til þess að uppfylla skilyrði 4. mgr. 5. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu. Regluleg endurskoðun nauðsynjar áframhaldandi nauðungarvistunar að frumkvæði dómstóla er nauðsynleg til þess að tryggja að nauðungarvistun standi aldrei lengur yfir en brýnustu nauðsyn ber til.
- Í svörum Íslands kemur fram að framkvæmd ákvæðisins um ákvörðun sýslumanns á áframhaldandi nauðungarvist einstaklings að við lok upphaflegs 72 klst. (þá 48 klst.) tímabils nauðungarvistunar feli í sér að sjálfstæður sérfræðingur, annar en sá er stóð að upphaflegri vistun, sé fenginn til þess að meta ástand hins nauðungarvistaðra og nauðsyn áframhaldandi vistunar. Því sé ekki þörf til aðgerða varðandi þau tilmæli nefndarinnar.
Það hlýtur að teljast æskilegt í ljósi réttaröryggis þeirra er sæta þurfa nauðungarvistunum að lög tryggi að óháður sérfræðingur skuli meta þörf fyrir áframhaldandi nauðungarvistun í öllum tilfellum. Greinargerð við lögræðislögin frá 1997 tekur fram að mat óháðs sérfræðings sé almenn verklagsregla meðal lækna og því þyki ekki tilefni til þess að lögfesta það skilyrði. Ekki er hægt að taka undir þetta sjónarmið löggjafans og ætti í raun að ganga mun lengra í þeim kröfum sem gerðar eru um sönnunarbyrði yfirvalda á algjöra nauðsyn nauðungarvistunar í hverju tilfelli fyrir sig.
- Í núgildandi lögræðislögum heimilar 2. tl. 28. gr. yfirlækni að beita nauðungarvistaðan mann þvingaðri lyfjameðferð eða annari þvingaðri meðferð að undangenginni „ákvörðun“ án frekari skilyrða fyrir nauðsyn beitingu nauðungar. Svar íslenska ríkisins leit framhjá inntaki tilmæla nefndarinnar í þessu tilliti og svaraði einfaldlega með endurtekningu á núverandi fyrirkomulagi laganna.
CPT – nefndin kvað ákvæðið heimila of víðtæka undantekningu á þeirri meginreglu að allir eigi rétt til þess að þess að gefa upplýst samþykki fyrir hvers konar læknismeðferð ellegar hafna henni. Úrskurður sýslumanns um heimild til nauðungarvistunar megi ekki sjálfkrafa fela í sér leyfi til þvingaðrar meðferðar í kjölfarið. Nauðsynlegt sé því að takmarka heimild fyrir þvingaðri meðferð við undantekningartilfelli sem útlistuð eru í lögum á skýran og afmarkaðan hátt. Sinnuleysi stjórnvalda gagnvart þessum tilmælum CPT – nefndarinnar er einkar ámælisvert í ljósi þess um hversu alvarlega skerðingu grundvallarmannréttinda er að ræða við þvingaða meðferð.
- Yfirvöld svöruðu nefndinni á þá leið að verið væri að leggja lokahönd á gerð ítarlegar stefnu um beitingu nauðungar fyrir starfsmenn allra stofnana er hafa með höndum nauðungarvistun einstaklinga.
Ekki er að sjá að slík stefna hafi verið mynduð.
- Fram kom í svörum íslenska ríkisins að áætlað væri að taka það til séstakrar skoðunar hvort semja ætti reglugerð sem segði nánar fyrir um beitingu nauðungar við nauðungarvistun.
Finna má reglugerðarheimild heilbrigðisráðherra til þess að semja slíka reglugerð en hún hefur hið minnsta ekki tekið gildi þegar þessi orð eru skrifuð.
- Íslensk stjórnvöld brugðust ekki við því á beinan hátt að þörf væri á því að setja á fót sjálfstæða nefnd sem færi með eftirlit gagnvart stofnunum er fara með umsjá frelsissviptra einstaklinga. Tekið var fram að Vistmönnum byðist að ræða við fulltrúa notenda og eins að þeir hefðu aðgang að ráðgjafa til þess að koma kvörtunum og kærum á framfæri.
Grundvallarmunur er á hlutverki og eftirlitsgetu einstaka ráðgjafa eða fulltrúa og sjálfstæðri eftirlitsstofnun. Endurskoða ætti afstöðu stjórnvalda til þessa tilmæla nefndarinnar í því ljósi.
IV. Aðrir ágallar laganna
Í dómi MDE, M.S. gegn Króatíu nr. 1 (36337/10), var deilt um lögmæti heimildar lögráðamanns til þess að kæra þann sem lögræðið náði yfir og að koma fram í nafni beggja í dómsmáli. MDE taldi lög ekki vera til staðar sem gerðu greinarmun á ákvörðun lögráðamanns og þess lögræðissvipta en slíkt væri nauðsynlegt að kæmi fram í lögum vegna þess að sum tilvik krefðust þess, m.a. þegar lögráðamaður var sóknaraðili á meðan hann gat tekið ákvörðun fyrir varnaraðila.
Í 4. gr. lögræðislaganna c-lið, er gert ráð fyrir að maður getur sjálfur óskað eftir lögræðissviptingu. Þá heimilar 1. töluliður 58. gr. laganna að lögræðismaður geti óskað eftir lögræðissviptingu á lögræðissvipta þess högum hann þegar stjórnar. Augljós annmarki er á slíku fyrirkomulagi og óskiljanlegt að ekki hefur verið talin þörf á þessari breytingu. Þá er tekið fram í c-lið 4. gr. að ,,heilsubrestur“ er meðal þeirra atriða sem taldir eru upp skv. töluliðnum. Nauðsynlegt er að taka af allan vafa um að lögráðamaður geti ekki nýtt sér heimild c-liðar 4. greinar lögræðislaga til framlengingar lögræðissviptingar skjólstæðings síns.
Athygli vekur að lögræðislög kveða hvergi á um hvað nauðsynlega þurfi að sýna sé fram á í greiningum eða álitum lækna fyrir grundvöll þeirra frelsissviptinga sem lög kveða á um. Eðlilegt er að lög kveði á um hvaða skilyrði þurfa að vera til staðar þannig greining eða álit sé gilt. Þannig tryggja lögin að dómstólar geti lagt sjálfstætt mat á greiningu lækna, eins og MDE hefur sett sem grundvallar skilyrði svo hægt sé að byggja á slíkri greiningu fyrir jafn mikla grundvallar frelsissviptingu og lög gera þó ráð fyrir, sbr. (Lashin gegn Rússlandi).
Að lokum má nefna að 5. gr. lögræðislaga samrýnist ekki 4. gr. laganna. Líklegt er að um fljótfærnismistök hafi verið að ræða en svo virðist að 2. tl. 5. Grein heimili ótímabundna fjárræðissviptingu varðandi ákveðnar eignir og 3. tl. 5. gr. virðist óþarfur ef ótímabundin svipting bæði sjálfræðis og lögræðis hafi verið afnumin með nýlegum breytingum.
V. Samantekt á helstu niðurstöðum
Hér má sjá stutta samantekt á helstu niðurstöðum úttektarinnar (að undanskildum tilmælum CPT-nefndarinnar) flokkað eftir alþjóðlegum skuldbindingum Íslands.
1. Mannréttindasáttmálar
1.1. Varðandi mannréttindasáttmála Evrópu:
Ákvæði um lögræðissviptingu: Vafasamt er að sú staða að lögræðislög kveða ekki skýrt á um það sem koma þarf fram í mati læknis við sönnunarfærslu í lögræðissviptingarmálum uppfylli kröfur MDE um lögmæti skerðingar á réttindum skv. 8. gr. sáttmálans.
Nauðsynlegt er að skýrt sé í lögum hvaða ákvarðanir lögræðismaður getur aldrei tekið fyrir hönd hins svipta, sbr. þegar lögræðismaður væri aðili máls beggja.
Ákvæði nauðungarvistunar: Sama sjónarmið og fyrir ofan varðandi lögbundnar kröfur til skýrleika og atriða um það sem koma þarf fram í mati lækna. Einnig setur dómstóllinn þá kröfu að nauðungarvistun sé nauðsynleg til verndar lífi og heilsu viðkomandi eða ríkir almannahagsmunir komi til.
Ákvæði um þvingaða meðferð: Ákvæði 2. mgr. 28 gr. uppfyllir ekki lágmarkskröfu dómstólsins um vörn gegn geðþóttamati. Þá má slíkt aðeins koma til sem sé talið nauðsynlegt til verndar lífi og heilsu viðkomandi eða ríkir almannahagsmunir komi til. Þá gilda einnig sömu sjónarmið eins og fyrir ofan varðandi lögbundnar kröfur um hvað komi fram í mati lækna til að uppfylla kröfur MDE.
1.2. Varðandi samning S.þ, án þess að taka tillit til hófsamari túlkun fræðimanna þá:
Ákvæði um lögræðissviptingu: Uppfylla ekki samning S.þ. Lögræðissviptinig er þó ekki með öllu óheimil, sbr. sakfelling eða gjaldþrot.
Ákvæði nauðungarvistunar: Uppfylla ekki samning S.þ. Nauðungarvistun er alltaf óheimil.
Ákvæði um þvingaða meðferð: Uppfylla ekki samning S.þ. Slík meðferð alltaf óheimil.
1.3. Varðandi samning S.þ m.t.t. hófsamrar túlkunar fræðimanna á skilyrðum samnings S.þ:
Ákvæði um lögræðissviptingu: Mögulegt er að ákvæði í núverandi mynd geti uppfyllt lágmarkskröfur samnings S.þ ef raunveruleg ,,vægari úrræði í formi aðstoðar“ standa til boða. Núverandi fyrirkomulag aðstoðar er þó ekki fullnægjandi. Þá ber einnig að huga að betri umgjörð fyrir takmarkaða lögræðissviptingu og meiri völd persónulegs talsmanns gagnvart lögráðamönnum til að tryggja að allar ákvarðanir séu tekinar út frá vilja og gildismati hins fatlaða einstaklings en ekki mati þriðja aðila.
Ákvæði nauðungarvistunar: Uppfylla ekki samning S.þ. Þau geta þó mögulega uppfyllt samning S.þ. Vantar nákvæmari, betri og afmarkaðri reglur til að koma í veg fyrir mismunun.
Ákvæði um þvingaða meðferð: Uppfylla ekki samning S.þ. Heimila aldrei þvingaða meðferð.
VI. Afstaða til fullgildingar á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Eins og fram hefur komið er markmið fullgildingar samningsins að raunverulega bæta mannréttindi hér á landi. Fullgilding samningsins hefur það að markmiði að tryggja réttindi á borði en ekki aðeins í orði. Til að ná því markmiði getur verið nauðsynlegt að fullgilda, með loforði um að lögfesta (sem fylgir alltaf slíkri fullggildingu), samninginn áður en fyllilega er ljóst er hvort innlend löggjöf og framkvæmd þarfnist nánari lagfæringa. Sú leið sem hefur verið farinn að reyna fyrst að uppfylla öll skilyrði samningsins áður en til fullgildingar kemur hefur ekki borið árangur sem skildi. Raunar má sjá á vinnuskjali innanríkisráðuneytisins að túlkun þess brýtur í bága við almenna túlkun á samningi S.þ.
Vankantar lögræðislaga eru vissulega enn til staðar eftir tilraun til lagfæringar, sú leið gæti haldið áfram í fjölda ára án árangurs. Til að tryggja árangur í verki er fýsilegt að fullgilda samninginn, það gæti komið á daginn að slíkt hafi alltaf verið nauðsynlegt hvort eð er.
Ásamt því að vera í raun nauðsynlegur liður til þess að staðfesta að íslensk lög uppfylli samninginn, þá hraðar fullgilding sjálfkrafa vinnu við lagfæringu á löggjöf Íslands til þess að hún standist ákvæði samningsins, jafnvel þó einhverju verði áfram ábótavant.
Varhugavert er því að nota þau rök gegn fullgildingu samningsins að sumu þurfi að breyta fyrst. Markmiðið með fullgildingu er að bæta stöðu mannréttinda í landinu, það er ekki fullgilding í sjálfu sér sem er markmiðið. Fullgilding samninsgins mun koma til með að þjóna því markmiði sem best, að bæta stöðu mannréttinda á Íslandi.
Heimildir
[1] Skýrslur nefndarinnar um heimsóknir sínar til Íslands og svör Íslenskra stjórnvalda við athugasemdum nefndarinnar má finna á vef Evrópuráðsins. http://www.cpt.coe.int/en/states/isl.htm (sótt 26. 03. 2016).
[2] Skjal vinnuhópsins má nálgast hér: https://www.innanrikisraduneyti.is/media/frettir-2015/lokaeintak-af-greinargerd-fylgiskjal-2.pdf (sótt 26. 03. 2016).
[3] Töfluna má nálgast hér: https://www.innanrikisraduneyti.is/media/frettir-2015/Samningur-um-rettindi.pdf (sótt 26. 03. 2016).
[4] Aths. höfundar: Hér er bagaleg þýðingavilla á ákvæðinu. Réttara væri að hér stæði „Aðildarríkin viðurkenni að fatlað fólk njóti lögformlegs hæfis til jafns við aðra á öllum sviðum mannlífs.“
[5] Almennar athugasemdir um 12. gr. samningsins 19. maí 2014 (General comment No. 1 (2014) Article 12: Equal recognition before the law.
[6] Skilyrði 4. gr. eru:
a. Ef hann er ekki fær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé vegna andlegs vanþroska, ellisljóleika eða geðsjúkdóms eða vegna annars konar alvarlegs heilsubrests.
- [Ef hann sökum ofdrykkju eða ofnotkunar ávana- og fíkniefna er ekki fær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé og einhver þeirra ástæðna sem tilgreindar eru í a- og c-lið eiga við um viðkomandi.]1)
- Ef hann vegna líkamlegs vanþroska, heilsubrests eða annarra vanheilinda eða fé og æskir sjálfur lögræðissviptingar af þeim sökum.
[7] „Persons with disabilities include those who have long-term physical, mental, intellectual or sensory impairments which in interaction with various barriers may hinder their full and effective participation in society on an equal basis with others.“
[8] Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks – Lögformlegt hæfi – Legal Capacity
- gr. samningsins. Fyrirlestur Ölmu Ýrar Ingólfsdóttur á vegum landssamtakanna Geðhjálpar, 15. mars 2016, glæra 3.
[9] Þegar vísað er til orða eða yfirlýsinga nefndarinnar er átt við Almennar athugasemdir um 12. gr. samningsins 19. maí 2014, nema annað sé tekið fram.
[10] Almennar athugasemdir um 12. gr. samningsins 19. maí 2014, málsgrein 23.
[11] Ástandsnálgun sem finna má í skilyrði 4. gr.: andlegs vanþroska, ellisljóleika, geðsjúkdómur, annars konar alvarlegur heilsubrestur, líkamlegur vanþroski, heilsubrestur eða önnur vanheilindi. Afleiðingarnálgun má finna í skilyrði 4. gr.: ekki talinn fær um að taka ákvarðanir er varða persónulega hagi sína eða fé (af völdum mats á skertu andlegu hæfi).
[12] John Dawson. A realistic approach to assessing mental health laws’ compliance with
the UNCRPD. International Journal of Law and Psychiatry 40 (2015) 70–79.
[13] Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir. Frá forræði til sjálfræðis. ML í lögfræði. 2014. Aðgengilegt á: http://skemman.is/stream/get/1946/17313/39414/1/Helga_Baldvinsd%C3%B3ttir_Bjargard%C3%B3ttir_ML.pdf (sótt 27. 03. 2016)
[14] Sjá bls. 8 – 18 í skýrslu sendiboðans til aðalritara Sameinuðu þjóðanna frá 28. Júlí 2008. https://documents-dds-ny.un.org/doc/UNDOC/GEN/N08/440/75/PDF/N0844075.pdf?OpenElement (Sótt 26. 03. 2016).
[15] John Dawson. A realistic approach to assessing mental health laws’ compliance with
the UNCRPD. International Journal of Law and Psychiatry 40 (2015) 70–79.
[16] Skýrslur nefndarinnar um heimsóknir sínar til Íslands og svör Íslenskra stjórnvalda við athugasemdum nefndarinnar má finna á vef Evrópuráðsins. http://www.cpt.coe.int/en/states/isl.htm (sótt 26. 03. 2016).
